Monday, May 4, 2009

Engiferyndi


Átti kóríander og engifer og langaði að nota það. Átti engar núðlur, langaði í eitthvað létt og mjög fljótlegt. Þetta varð útkoman og ég held að ég sé ekki að gleyma neinu, hafði svo sem ekki ætlað þetta síðunni en fannst þetta bara svo gott og ekki verra að 5 mín tók að gera þetta. Það er nauðsynlegt að eiga strengjabaunir eða hvað þær nú heita í frystinum, ég nota þær endalaust.

Engiferyndi

Sorry, hér verða engin hlutföll uppgefin, bara man þau ekki en maður fær alla vega hugmynd um hvernig maður gerir þennan ofureinfalda og létta rétt.
Skellti sesamlíuolíu á pönnuna, svo lauknum og á eftir því hvítlauknum, lét malla í smá stund. Skellti svo frosnu baununum út í og reif svo engiferið yfir, lét malla stutta stund í viðbót áður en ég bætti við kjúklingabaununum og lét malla örlítið lengur. Stráði kóríander yfir og kreisti svo yfir smá lime. Það er svo auðvitað tilvalið að hafa þetta með núðlum eða grjónum með en ég vildi þetta svona létt þetta skiptið.

Sunday, April 19, 2009

Oft þarf ekki mikið til að gleðja


Hélt brunch fyrir nokkrar vinkonur um daginn. Hafði verið að vinna á úrslitum Músiktilrauna kvöldið áður og því tekið meðvitaða ákvörðun um að halda myndarskapnum í lágmarki og hafa þægindin í hámarki. Þ.e. keypti bara það sem þurfti (stelpur, bíð næst upp á eggjahræru, pönnukökur og annað góðgæti) Og hjúkk, því ég var orðin frekar slöpp þegar stelpurnar komu og gjörsamlega raddlaus svo ég sat bara við endann og þagði að mestu (gott að aðrir fái loks að komast að, haha) Alla vega, að brunchinum loknum lá leiðin í afmæli hjá afa Eldars, honum Gísla. Hafði ætlað að kaupa eitthvað handa honum á leiðinni en tímaskortur gerði að ég ákvað bara að setja saman 2 muffins í sellófan með 2 litlum páskaeggjum og svo límdi ég eitt af uppáhalds lögum Sögu, Fann ég á fjalli, framan á en hún hafði verið að syngja þetta heima hjá langömmu og -afa um daginn og ömmu Guðný fannst það svo fallegt. Þetta hitti alveg í mark, sjálfri þykir mér svo gaman að svona gjöfum og maður þarf að muna að það er hugurinn sem skiptir máli.

Wednesday, April 15, 2009

Spínat- og skyr tortillur á tómatbeði

Hrefna mágkona mín passar stundum Sögu fyrir okkur. Þá reynir maður nú helst að gefa henni gott í gogginn svo að hún vilji koma sem oftast. Ekki nóg með að þessi uppskrift sé ljúfeng, þá er hún bara nokkuð holl. Mig minnti að ég væri þegar búin að gefa hana upp, geri þetta reglulega, en eftir að hafa rennt í gegnum þær uppskriftir sem komnar eru, þá sé ég að ég minnist á hana í október 2007 að ég hafi eldað þetta handa Karlottu systir og mág minn þegar þau pössuðu einmitt. Um leið og ég renndi yfir þá tók ég eftir hversu fáa eftirrétti ég hef gefið upp, en þeir hafa og eru alltaf mín veika hlið. Segjum það áskorun héðan í frá!

"Pössunartortillur" með spínati og skyri á tómatbeði
  • 1 rauðlaukur, skorin
  • 1-2 hvítlauksrif, kraminn
  • 500 g ferskt spínat, 250 g frosið.
  • 150 g. hreint skyr
  • 100 g rjómaostur
  • 1/2-1 tsk múskat
  • 1/2 - 1 dós nýrnabaunir
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 4 msk sýrður rjómi (má sleppa)
  • 4 tsk paramesan ostur
  • salt og pipar
  • 6-8 heilhveititortilllur eða bara venjulegar
Steikið lauka í olíu í 2-3 mín á háum hita, lækkið svo hitann, sér í lagi ef notað er fryst spínat, hrærið og snúið því við þangað til það er farið að losna í sundur, það gæti þurft að hella auka vökva í burtu, ef ferskt er notað þá bara steikja þangað til að það hefur mýkst og minnkað. Bætið svo út í baunum, skyri og rjómaosti, kryddið með salti, pipar og múskati.

Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu, hellið tómötunum útí, saltið, piprið og notið jafnvel chayenne pipar eða chili pipar. Skiptið fyllingunni á pönnukökurnar, rúllið upp og látið "sárið"
snúa niður. Bakið í ca. 15 mín á 200∘

Takið út og skellið smá sýrðum rjóma og paramesan á hverja tortillu. Ég bar þetta svo fram með brúnum grjónum og góðu salati.

Sunday, April 12, 2009

Ítölsk páskabaka


Jæja, enn og aftur komnir páskar. Ég held voða mikið upp á páskana. Birtan er yfirleitt svo falleg á þessum tíma, týpískt gluggaveður má segja. Hef átt afmæli stundum á páskadag, m.a. á tvítugsafmælinu sem er mér eftirminnilegt. Ákváðum loks að láta verða af því að fara á hina frábæru hátíð, Aldrei fór ég suður. Ætluðum öll fjölskyldan að fara. För var frestað á skírdag þegar Saga var veik. Og enn var hún veik á föstudeginum svo við hjónin flugum vestur og hún í góðum höndum tengdó. Í stuttu máli, urðum líka fárveik og ég sá lítið meira en hótelherbergið og við snerum tilbaka daginn eftir. Hér kemur uppskrift af páskaböku frá Piedmont héraði á N-Ítalíu. Gerði þessa á skírdag og telst því til páskamats. Þetta tekur smá tíma en höfum við tíma til að horfa á sjónvarp eða hanga í tölvunni, þá höfum við nú örugglega smá tíma í matseld um páskana. (Talað beint frá sjónvarps- og tölvuglápandi frúnni)

Ítölsk Páskabaka

  • 85 g klettasalat
  • 1 laukur, saxaður
  • 2 hvítlauksrif, söxuð
  • 200 g arborio risotto grjón
  • 7 dl grænmetissoð
  • 1 1/4 dl hvítvín (má sleppa)
  • 50 g rifinn paramesan
  • 120 g frosnar grænar baunir
  • 2 tómatar, skornir í teninga
  • 4 egg, vispuð
  • 3 msk marjoram, saxað
  • 55 g brauðrasp

Hitið ca. 2 msk af ólífuolíu á pönnu og léttsteikið laukinn og hvítlaukinn í 4-5mín. Skellið grjónunum útí, leyfið grjónunum að verða "gegnsæ" og byrjið þá að hella yfir vökvanum, koll af kolli og leyfið vökvanum að gufa upp áður en meiru er hellt yfir, muna að hræra vel. Látið svo vínið yfir þegar á líður (ef vín er ekki notað þá nota bara aðeins meira soð)

Þegar risottoið virðist tilbúið, þá bæta út í osti, baunum, klettasalati, tómötum, eggjum og 2 msk af marjoram. Saltið og piprið vel og hrærið öllu vel saman.

Látið í djúpt kökuform sem búið er að smyrja með smjöri og þjappið blöndunni í formið. Stráið brauðraspinu og 1 msk af marjoram yfir.

Bakið í 180 C í 30-40 mín eða þangað til raspið verður gullið. Berið fram með góðu salati.

Friday, November 21, 2008

Tælensk linsu- og kartöflusúpa


Ég hef gert það einstaka sinnum að elda hérna í Hinu Húsinu handa mannskapnum og auðvitað með hjálp samstarfsmanna. Búlgarska linsusúpan kom td. sterk inn. Þessi súpa er svo einföld og góð en svo er líka bara svo huggulegt að borða öll saman svona í skammdeginu þar sem við erum ekki með mötuneyti. Ég gerði sem sagt áttfalda uppskrift þarna um daginn en hér er einföld. Mæli þó með að maður geri tvö- eða -þrefaldi, svo frystið þið þetta bara. Það er líka hægt að bæta grjónum út í afganginn og láta inn í tortillu.

Tælensk linsu- og kartöflusúpa

  • 1/2 laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 tsk red currypaste (gott frá thai-choice, gott að eiga í ískápnum)
  • 1 tsk rifið engifer
  • 2 dl rauðar linsur
  • 6dl vatn
  • 1 grænmetisteningur
  • ca. 1 1/2 dl kókosmjólk
  • 2 tómatar
  • 1 meðalst.kartafla
  • 1 lime
  • 1 rautt chili
  • salt
  • kóríander
  • Gott að bæta út í 2 limeblöðum eða sítrónugras ef maður á til

Gera:
Hellið olíu í pott, setjið út í lauk, hvítlauk og chili, steikið í ca. 2 mín. Bætið svo linsum,kartöflum og tómötum út í og steikið í 1-2 min. í viðbót, hellið þá yfir soðinu (vatnið og teningurinn) Fáið upp suðu, og látið svo sjóða í nokkrar mínutur og lækkið svo aðeins undir og látið malla. Rífið smátt börkinn af lime út í og notið svo líka safann úr því, ca. 1-2msk. Látið kókosmjólkina og engifer út. Látið ca. lúkufylli af kóríander út í. Saltið aðeins. Malla aðeins. Bera svo fram með kórander ofan á. Einnig er gott að rista möndluflögur, og dreifa yfir. Verði ykkur að góðu!

Thursday, November 20, 2008

Huggulegt matarboð

Sósan er eiginlega enn fallegri í "alvöru", meira bleik

Þarna sitjum við, ég hálfskrítin á svip og kannski ekki besta myndin en fær að fylgja með:)

Fennikan góða, þetta er í raun mjög einfaldur og góður forréttur

Jæja, þá er komið að því, Rauðrófu pasta rétturinn góði! Fengum Helgu Kristínu, Alla og Hrefnu mágkonu í heimsókn. Fengum reyndar aukaheimsókn en það er önnur saga. Það er ekkert leyndarmál að ég elska rauðrófur svo hér kemur ein góð uppskrift, tekin úr bók sem heitir "Grænmetisréttir af gnægtarborði jarðar", bók sem einhver góður gaf mér fyrir löööngu síðan, örugglega 15 árum síðan og hún var alltaf ofan í einhverjum kassa, beið örugglega eftir að ég gerðist grænmetisæta. Eldar fór í fyrra í Kolaportið þar sem bókin var á söluborðinu. Ég gluggaði í hana og bjargaði henni frá sölu, enda "gnægtir" af góðum uppskriftum! Í henni fann ég líka fínan forrétt þar sem aðalhráefnið er fennika, á myndinni lítur hann reyndar pínu út eins og hálf akurhæna eða eitthvað en látið ekki myndina blekkja. Voila!

Rauðrófupasta

handa 4
  • 225 g soðnar rauðrófur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk sítrónusafi
  • 3 dl rjómi
  • 1 tsk balsamedik
  • 1 tsk dijon sinnep
  • sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
  • 400 g pasta (ég notaði tagliatelle)
  • 1 msk ólífuolía
Gera: Setjið rauðrófurnar, hvítlaukinn, sítrónusafann og helminginn af rjómanum í matvinnsluvél eða blandara og gerið úr því jafnt mauk. Setjið blönduna í meðalststóran pott, hellið afganginum af rjómanum ´út í og hitið við lágan hita. Látið þetta hitna vel í um 8-10 mínútur en ekki sjóða. Bætið við balsamediki, sinnepi, salti og mikið af pipar. Hrærið vel og hafið lágan hita. Sjóðið pastað. Látið renna af pastanu í sigti, látið aftur í pottinn, hellið yfir olíunni og hrærið. Deilið pastanu á diska og svo sósu yfir, ekki verra að strá ferskri kryddjurt yfir. Yummie (þá má jafnvel láta aðeins meira dijon ef maður er sjúkur í dijon eins og ég)
p.s. svona á "krepputímum" þá er ég að spá í að prófa rauðrófur í krukku, ath bara að þær eru bæði súraðar og sætar svo kannski þarf að breyta eitthvað hlutföllum á öðru. Einnig nota ég yfirleitt matreiðslurjóma í stað venjulegs

Bökuð fennika
  • 900 g fennikuhnýði (keypti í Hagkaup, ekki eins dýrt og ég hélt en þetta var fyrir "kreppu"
  • 50 g smjör
  • 1/2 tsk múskat
  • salt og nýmalaður svartur pipar
  • 50 g nýrifinn paramesan ostur

Hitið ofninn í 200, Hreinsið fennikuna, fleygið öllum sködduðum blöðum, skerið fíngerðu blöðin af (líta pínu út eins og dill). Skerið "hnýðin" þversum eða í tvennt og sjóðið í léttsöltuðu vatni þar til þau eru mjúk, í ca. 10-15 mín. Látið renna vel af þeim. Smyrjið grunnt ofnfast fat. Setjið fennikuna í fatið og stráið á hana múskati, salti og pipar. Setjið afganginn af smjörinu ofan á í. í klípum o gstráið paramesan ostinum efst. Bakið í miðjum ofni þar til rétturinn er orðinn gullbrúnn, í um 10 mínútur. Setjið fíngerðu fennikublöðin yfir og berið fram

Monday, October 27, 2008

Hirsi tacos





Jæja, spurning um að vera með nýja uppskrift á 3 mánaða fresti. Ég er með nokkrar í biðstöðu og nú ætla ég að vera aðeins duglegri því mér finnst þetta svo skemmtilegt, ja að laga mat en löt að blogga. Ekki er verra að flestar uppskriftana á blogginu eru ódýrar eða í ódýrari kantinum og það er algjör goðsögn að það sé endilega dýrt að vera grænmetisæta.

Var víst löngu búin að lofa að láta þessa inn því hún bara klikkar ekki, holl og alls ekki dýr(er í bókinni Vego sem var fyrsta grænmetisuppskriftabók okkar Eldars). Hirsi er járn- og steinefnaríkt og grænu linsurnar eru einnig mjög járnríkar (gott fyrir grænmetisætur og konur á blæðingum)

Eins og ég hef oft sagt áður þá látið ekki innihaldslistann hræða ykkur því þegar þið hafið gert þennan rétt einu sinni, þá verður ekki aftur snúið og þá getur maður líka leikið sér aðeins með hann.

Hirsi tacos
  • 2dl soðið hirsi (ég giska á að það sé 1 og 1/2 dl ósoðið)
  • 2dl soðnar grænar linsur ( sama hér myndi ég giska)
  • 4dl vatn
  • 2 dl nýrnabaunir ( skellið bara öllu útí ef þið notið úr dós svo engu sé hent)
  • 1 rauð paprika
  • grænar baunir
  • 1 gulur laukur
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 1 gulrót
  • 1 tómatur
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • olía
  • salt og pipar
  • tacoskeljar
  • Avacado (ég bý til guacamole, má sleppa)
  • rifinn ostur
  • 1stk chili (ef Saga er ekki með, annars kryddar maður bara sjálfur eftirá)

Gera:
Sjóðið hirsi og linsur í vatninu, hakkið smátt lauk, hvítlauk, gulrót og papriku, léttsteikið í olíu. Bætið svo út í hirsiblöndunni og nýrnabaunum og hellið svo hökkuðu tómötunum útí og blandið öllu saman. Leyfið þessu að malla í ca. 10 mínútur. Hitið tacoskeljarnar í ofni. Bætið svo út í grænu baununum og kryddið með salti og pipar og berið fram í skeljunum ásamt avacado eða guacomole, og rifnum osti.

Ég tek svo yfirleitt allt fram sem til er: feferoni (þetta græna á myndunum, fæst í ýmsum betri búðum), fetaost, jalapenos, grænar ólfur, salat og bara allt sem manni dettur í hug

Maður getur að sjálfsögðu notað annars konar grjón/korn, rauðar linsur, maísbaunir í stað grænna bauna, annað grænmeti, frosið grænmeti og mjúkar tortillur. Nú eða borða þetta bara sem pottrétt.